Um mig
Hanna Kristín
Skaftadóttir
Ph.D. í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum frá Háskóla Íslands og CEO fyrirtækisins Sanitica AI. Sem lektor og fagstjóri viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst og stundakennari við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík kenni ég á sviði hagnýtrar gervigreindar, sjálfvirknivæðingar, fjártækni, hagnýtrar upplýsingatækni og gagnadrifinnar ákvörðunartöku.
Með yfir tveggja áratuga reynslu á sviði nýsköpunar, þróunar og fjármála hef ég stofnað fimm fyrirtæki og veitt ráðgjöf yfir 150 viðskiptavinum, á síðastliðnum 10 árum, í gegnum Poppins & Partners á sviði nýsköpunar, þróunar og fjármögnunar ásamt eigin rekstri hjá Data Safari. Starfsferill minn nær yfir störf hjá Íslandsbanka, Deloitte og KPMG, þar á meðal úttekt Seðlabanka Íslands, áður en ég hóf eigin rekstur árið 2014.
Rannsóknir mínar eru á sviði gervigreindar, stafrænna fjármála og tækniaðlögunar skipulagsheilda, með sérstaka áherslu á skýringarhæfa gervigreind (XAI), félagstæknilegt stjórnkerfi og málvinnslugreiningar. Ég er virkur þátttakandi í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi, þar á meðal MSCA Digital Finance (co-lead fyrir þjálfun doktorsnema) og COST FinAI rannsóknarnetinu.
Ég er MIT-vottaður VMS mentor og sit í stjórnum Hefring Marine og sem fulltrúi Íslands í JTC21 (EU AI Act staðlar) og áður í Nordic Smart Government & Business verkefninu. Á alþjóðavettvangi hef ég flutt fjölda erinda um gervigreind, sjálfvirknivæðingu og framtíð viðskipta.
Sérsvið
Stjórnar- og fagleg hlutverk
- 2024–Stjórnarmaður, Hefring Marine ehf.
- 2024–Stjórnarmaður, CEN/CLC/JTC 21 (EU AI Act staðlar)
- 2025–Associate Editor, Management & Marketing
- 2021–Lektor & fagstjóri, Háskólinn á Bifröst
- 2019–Stundakennari, Háskóli Íslands
Menntun & þjálfun
- 2026Ph.D. AI & Automation in Business, Háskóli Íslands
- 2020Doctoral Course in Machine Learning & Data Analytics, University of Ljubljana
- 2015Linguistics & Developmental Psychology, Stanford University (Summer Session)
- 2012M.Sc. Accounting & Auditing, Háskólinn í Reykjavík
- 2009B.Sc. Viðskiptafræði, Háskólinn í Reykjavík