Um mig

Hanna Kristín
Skaftadóttir

Ph.D. í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum frá Háskóla Íslands. Sem dósent í hagnýtri gervigreind og upplýsingatækni við Háskólann á Bifröst og stundakennari við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík kenni ég á sviði hagnýtrar gervigreindar, sjálfvirknivæðingar, fjártækni, hagnýtrar upplýsingatækni og gagnadrifinnar ákvörðunartöku.

Með yfir tveggja áratuga reynslu á sviði nýsköpunar, þróunar og fjármála hef ég stofnað fimm fyrirtæki og veitt ráðgjöf yfir 150 viðskiptavinum, á síðastliðnum 10 árum, í gegnum Poppins & Partners á sviði nýsköpunar, þróunar og fjármögnunar ásamt eigin rekstri hjá Data Safari. Starfsferill minn nær yfir störf hjá Íslandsbanka, Deloitte og KPMG, þar á meðal úttekt Seðlabanka Íslands, áður en ég hóf eigin rekstur árið 2014.

Ég er MIT-vottaður VMS leiðbeinandi og sit í stjórnum Hefring Marine og sem fulltrúi Íslands í JTC 21 (staðlar tengdir gervigreindarlöggjöf ESB) og áður í Nordic Smart Government & Business verkefninu. Á alþjóðavettvangi hef ég flutt fjölda erinda um gervigreind, sjálfvirknivæðingu og framtíð viðskipta.

Rannsóknir

Rannsóknir mínar snúa að því hvernig fólk og skipulagsheildir taka upp gervigreind á ábyrgan hátt, og hvernig gera má flókin líkön skiljanleg og traustsins verð. Ég tengi aðferðir úr tölvunar- og gagnavísindum við raunveruleg viðfangsefni í fjármálum, stjórnun og menntun, og tek virkan þátt í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi, þar á meðal MSCA Digital Finance (meðstjórnandi þjálfunar doktorsnema) og COST FinAI rannsóknarnetinu.

  • Skýranleg gervigreind og traust. Hvernig gera má ákvarðanir líkana gagnsæjar, réttmætar og nothæfar í raunverulegri ákvörðunartöku.
  • Tækniupptaka skipulagsheilda. Hvernig sjálfvirknivæðing og gervigreind breyta hlutverkum, forystu og upplifun starfsfólks (félagstæknilegt stjórnkerfi).
  • Stafræn fjármál og fjártækni. Áhætta, regluvæðing og mynsturgreining, meðal annars í jafningjalánum og stafrænum eignum.
  • Aðferðafræði. Óskýr rökfræði, málvinnslu- og textagreining og matslíkön fyrir mat sérfræðinga.

Sérsvið

GervigreindSjálfvirknivæðing ferlaFjártækniViðskiptagreindSkýranleg gervigreindGagnadrifin ákvörðunNýsköpunStefnumótunRannsóknirKennslaFjármál

Stjórnar- og fagleg hlutverk

  • 2026–Fulltrúi í stjórnarnefnd (MC), COST Action AI-GUIDE (CA25157)
  • 2026–Fulltrúi í stjórnarnefnd (MC), COST Action ENDUeAI (CA25177)
  • 2024–Stjórnarmaður, Hefring Marine ehf.
  • 2024–Stjórnarmaður, CEN/CLC/JTC 21 (staðlar tengdir gervigreindarlöggjöf ESB)
  • 2025–Associate Editor, Management & Marketing
  • 2021–Dósent í hagnýtri gervigreind og upplýsingatækni, Háskólinn á Bifröst
  • 2019–Stundakennari, Háskóli Íslands
  • 2020Stjórnarmaður, Rafmyntaráð Íslands
  • 2020Stjórnarmaður, Stafræn viðskipti (SVÞ)

Kennsla

Háskólastig

  • BifröstHagnýt gervigreind, Gervigreind og sjálfvirknivæðing, og Siðfræði og stjórnarhættir gervigreindar
  • HÍFjártækni og gervigreind
  • HRHagnýt upplýsingatækni

Atvinnulíf & símenntun

  • FramiGervigreind og sjálfvirknivæðing fyrir stjórnendur, Stefnumótun og innleiðing gervigreindar hjá skipulagsheildum, og Erindrekin gervigreind fyrir byrjendur
  • StarfsmenntMicrosoft Copilot, hagnýtt námskeið

Menntun & þjálfun

  • 2026Ph.D. í gervigreind og sjálfvirknivæðingu í viðskiptum, Háskóli Íslands
  • 2020Doctoral Course in Machine Learning & Data Analytics, University of Ljubljana
  • 2015Linguistics & Developmental Psychology, Stanford University (Summer Session)
  • 2012M.Sc. Accounting & Auditing, Háskólinn í Reykjavík
  • 2009B.Sc. Viðskiptafræði, Háskólinn í Reykjavík